14.3.2010 | 18:17
Coco línuæfingar
Hér er hægt að skoða myndbandið í góðri upplausn:
http://www.facebook.com/video/video.php?v=1339404455719&ref=mf
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2010 | 22:00
Úrvalsflokksnámskeið
Við æfingarfélagarnir tókum okkur saman og erum búnir að ráða danskan þjálfara til að halda fyrir okkur námskeið fyrir Úrvalsflokkshunda í sumar. Sjá nánar hér http://www.retriever.is/spjall/forum/forum_posts.asp?TID=463&PN=1
Þátttökuréttur miðast við að hundur hafi fengið 1. einkun í opnum flokki. Það verður gaman að kynnast innleggi frá erlendum þjálfara og einnig að fá tækifæri til námskeiðs sem er sniðið að lengra komnum hundum.
Vonum við að þetta framtak styrki sportið enn frekar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2010 | 10:27
Fossatún 2009
Fékk sendar myndir sem voru teknar á veiðiprófinu sem haldið var við Fossatún helgina 13-14. júní sl. Dómari var Ulla Lindner frá Danmörku. Myndirnar tók Hulda Sigurðardóttir og eru þær komnar í myndaalbúmið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2009 | 22:59
Síðasti dagur í rjúpu á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 23:04
Kata er fallin frá
Kata mín féll frá í gærmorgun. Hún varð fyrir kalkskorti miðjan ágúst þegar hvolparninr voru rúmlega 5 vikna gamlir. Við það skaðaðist lifur og nýru. Hún virtist hafa náð sér nokkuð vel og hélt áfram að sinna hvolpunum sínum og var hin sprækasta. En í október fór að halla undan fæti, hún fór að verða slöpp, þó daga munur á henni.
Kata var mjög skemmtileg á rjúpu og var ekkert alltof kát með að vera alltaf heima þegar ég fór á rjúpu þetta haustið, en það var mikið sport hjá henni að taka á móti okkur Coco þegar við komum heim af rjúpu. Þá var ekkert sem hét að vera lasin eða veikburða. Fyrir rúmlega viku þegar ég kom heim af rjúpu lagði ég rjúpnavestið með nokkrum rjúpum í, upp á frystikstu í bílskúrnum og fór út í bíl að sækja restina af dótinu mínu. Þegar ég var búinn að ganga frá dótinu mínu og tók ég eftir því að það var rjúpnafiður út um allt og rjúpnavestið komið á gólfið og Kata hvergi sjáanleg. Ég fór út að skima eftir henni og fann hana bakvið hús með rjúpu í kjaftinum og dillaði skottinu eins og hún ætti lífið að leysa, sú var kát þessi elska, það stóð ekkert í vegi hennar þegar það var bráð annars vegar.
Kata var einstök og frábær félagi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.11.2009 | 17:19
Jólasteikin
Coco er að virka mjög vel á rjúpunni og sérstaklega gaman að veiða með henni þegar það er snjór yfir öllu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2009 | 22:42
10 dagar í rjúpuna
Fór með hundana í göngu í morgun í frábæru veðri, fundum nokkrar rjúpur. Á myndinni er Coco á standi, Fleiri myndir í myndaalbúminu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2009 | 13:31
Skemmtilegur gæsatúr á vesturlandi
Fór skemmtilegan gæsatúr á vesturlandi um síðustu helgi með feðgunum Jens og Heiðari og Gísla Arnarauga. Skiptum okkur tveir og tveir með sitt hvorn hundinn sem fengu góðan skammt af reynslu í miklu roki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2009 | 23:28
Gæsaveiði fyrir norðan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 2
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 403
- Frá upphafi: 44228
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 92
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar












